Með vísan til skýringa forsætisráðuneytisins hefur umboðsmaður ákveðið að láta athugun sinni á málsmeðferðartíma úrskurðarnefndar um upplýsingamál lokið.
Umboðsmaður tók málshraða hjá nefndinni til athugunar að eigin frumkvæði í kjölfar ábendinga og kvartana um tafir við afgreiðslu mála hjá henni. Þótt athuguninni sé nú lokið verður áfram fylgist með málsmeðferðartíma hjá nefndinni og brugðist við að nýju ef tilefni þykir til.
Mál nr. F15/20225
Tengdar fréttir
Málsmeðferðartími úrskurðarnefndar um upplýsingamál aftur til athugunar
Málsmeðferð tekur of langan tíma og forsætisráðherra hvattur til að stuðla að úrbótum