Umboðsmaður spyr forsætisráðuneytið um hvort afgreiðslutími mála hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál og starfsaðstæður hennar hafi verið til skoðunar hjá ráðuneytinu. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvort gripið hafi verið til einhverra aðgerða til að hraða meðferð mála hjá nefndinni og þá hverra eða hvort einhverjar slíkar aðgerðir séu fyrirhugaðar.
Afgreiðslutími nefndarinnar hefur oftar en einu sinni komið til athugunar hjá umboðsmanni. Á síðasta ári voru forsætisráðherra sendar ábendingar þar að lútandi og þess vænst að bætt yrði úr. Nýlegar kvartanir og ábendingar til umboðsmanns benda til þess að enn séu nokkur brögð að því að málsmeðferð fyrir nefndinni dragist úr hófi. Telur umboðsmaður því rétt að bregðast við.
Bréf umboðsmanns til forsætisráðuneytisins
Tengdar fréttir
Málsmeðferð tekur of langan tíma og forsætisráðherra hvattur til að stuðla að úrbótum