22. febrúar 2024

Spurt um eyðingu efnis úr eftirlitsmyndavélum á Litla-Hrauni og verklag við líkamsleit

Óskað hefur verið eftir upplýsingum frá Fangelsismálastofnun og Fangelsinu Litla-Hrauni um myndbandsupptökur úr öryggisklefum og meðhöndlun þeirra.

Tilefnið er að við meðferð kvörtunar hafði umboðsmaður óskað eftir tilteknum upptökum sem þá hafði verið eytt en upplýst var það væri jafnan gert að tveimur til þremur vikum liðnum frá upptöku.

Umboðsmaður hefur því óskað eftir nánari upplýsingum um verklagið, bæði almennt og þegar upp koma alvarleg atvik, eða kvartanir vegna slíks, sem gerast í vöktuðum rýmum. Jafnframt er spurt sérstaklega út í nokkur atriði varðandi málið sem varð kveikjan að þessari athugun. Þar á meðal hvort umbeðið myndefni hafi verið skoðað og hvers vegna ekki hafi verið talin ástæða til að varðveita það, s.s. með tilliti til hugsanlegrar kvörtunar fangans eða málskots. Loks vill umboðsmaður fá upplýsingar um lyktir þeirrar endurskoðunar sem staðið hefur yfir á verklagi við líkamsleitir á föngum. Óskað er eftir svörum fyrir 9. mars.