Ríkisskattstjóri lagði ekki fullnægjandi grundvöll að ákvörðun sinni um niðurlagningu embætta í hagræðingarskyni sem laut að starfslokum þriggja embættismanna.
Umboðsmaður gerði ekki athugasemd við það mat ríkisskattstjóra að niðurlagning embættanna í skipuriti Skattsins hefði verið nauðsynleg og í þágu málefnalegra markmiða. Að mati umboðsmanns uppfyllti ríkisskattstjóri aftur á móti ekki rannsóknarskyldu sína við niðurlagningu embættanna þar sem verulegur vafi lék á því hvort og jafnframt hvenær sett markmið um sparnað á launum næðust. Þá hefði ekki heldur verið leitað eftir afstöðu embættismannanna til flutnings í annað laust embætti. Var því beint í til ríkisskattstjóra að leita leiða til að rétta hlut þremenninganna.
Álit umboðsmanns í málum nr. 12934/2024, 12935/2024 og 12936/2024