01. september 2026

Athugun lokið að fengnum upplýsingum frá ríkissaksóknara

Umboðsmaður hefur lokið athugun sinni á því hvernig endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara, um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið, miðar.

Ríkissaksóknari greindi frá því að fyrir liggi drög að nýjum fyrirmælum sem ætlunin sé að gefa út á næstu vikum. Þar sem útgáfan er á næsta leiti er ekki tilefni fyrir umboðsmann til að halda athuguninni áfram. Hún óskar þó eftir því að verða upplýst þegar endurskoðuðu fyrirmælin verða gefin út og einnig ef það tefst.  

  

  

Mál nr. F7/2026

 

Tengdar fréttir

Óskað eftir upplýsingum frá ríkissaksóknara

Aðgangur að gögnum sakamála sem er lokið