Frumkvæðisathugun. Meðferð ákæruvalds. Stjórnaldsfyrirmæli. Lögreglu- og sakamál. Aðgangur að gögnum og upplýsingum.

(Mál nr. F7/2026)

Umboðsmaður tók til athugunar hvernig endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið miðaði. Tilefni athugunarinnar var að í kjölfar fyrri frumkvæðisathugunar hafði ríkissaksóknari upplýst að fyrirmælin hefðu verið tekin til endurskoðunar. Umboðsmanni bárust hins vegar ábendingar um að endurskoðun fyrirmælanna væri ekki lokið og af þeim sökum hefði dregist að afgreiða beiðnir um gögn. 

Í svari ríkissaksóknara við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að fyrir liggi drög að endurskoðuðum fyrirmælum, sem fylgdu hjálögð svari hans, og fyrirhugað væri að gefa þau út á næstu vikum. Meðal annars hefði tafið endurskoðunina að réttarreglur á þessu sviði séu flóknar og jafnfrramt reyni á túlkun ákvæða ólíkra laga og ýmissa hugtaka. Ríkissaksóknari upplýsti að meðferð kærumála hjá embætti hans hefði ekki tafist sökum þess að endurskoðun væri ólokið en upplýsti að honum væri þó kunnugt um að ein gagnabeiðni hjá héraðssaksóknara hefði verið í biðstöðu af þeim sökum.

Einkum með vísan til þess að útgáfa fyrirmælanna væri á næsta leiti taldi umboðsmaður ekki tilefni til að halda athugun sinni áfram. Þess var þó óskað að ríkissaksóknari gerði umboðsmanni grein fyrir því þegar fyrirmælin yrðu gefin út svo og ef kæmi til frekari tafa þar á.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.

  

   

Hér með tilkynnist að umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á því hvernig endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið miðar. Tilefni athugunarinnar var að í kjölfar fyrri frumkvæðisathugunar í máli nr. F116/2022, sem lauk með bréfi 9. febrúar 2024, tjáði ríkissaksóknari umboðsmanni 31. maí 2024 að fyrirmælin hefðu verið tekin til endurskoðunar. Umboðsmanni bárust síðar ábendingar um að endurskoðun fyrirmælanna væri enn ekki lokið og af þeim sökum hefði dregist að afgreiða beiðnir um gögn.

Í tilefni athugunarinnar var ríkissaksóknara ritað bréf 7. júlí sl. Í bréfinu kom meðal annars fram að umboðsmanni hefðu hvorki borist upplýsingar um að endurskoðun fyrirmælanna væri lokið né um hvernig vinnu við hana miðaði. Þá var tekið fram að umboðsmanni hefðu borist ábendingar um að fyrir vikið hafi afgreiðsla beiðna um aðgang að gögnum á grundvelli fyrirmælanna dregist. Var þess óskað að ríkissaksóknari upplýsti umboðsmann um hvað liði endurskoðun fyrrnefndra fyrirmæla. Þá var óskað upplýsinga um ástæður tafanna, væri endurskoðuninni ólokið, auk þess sem óskað var upplýsinga um hvort ríkissaksóknara væri kunnugt um að afgreiðsla beiðna um aðgang að gögnum í sakamálum sem er lokið hafi tafist af þeim sökum.

Svar ríkissaksóknara barst 11. ágúst sl. Í svarinu segir að fyrir liggi drög að nýjum fyrirmælum um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið og fyrirhugað sé að fyrirmælin verði gefin út á næstu vikum. Nýju fyrirmælin, sem fylgdu hjálögð svarinu í drögum, séu talsvert ítarlegri en fyrri fyrirmæli en meðal þess sem tafið hafi endurskoðunina sé að á umræddu sviði reyni á flóknar réttarreglur og túlkun ýmissa hugtaka og ólíkra laga. Í svarinu var jafnframt upplýst um samskipti við Persónuvernd í tilefni endurskoðunar reglnanna. Að síðustu segir í svari ríkissaksóknara að meðferð kærumála hjá embættinu vegna synjunar eða takmörkunar á aðgangi að gögnum hafi ekki dregist vegna tafa við útgáfu nýrra fyrirmæla. Ríkissaksóknara væri þó kunnugt um að afgreiðsla héraðssaksóknara á einni slíkri beiðni hefði verið í biðstöðu af þeim sökum.

Með vísan til svars ríkissaksóknara, einkum þess að útgáfa umræddra fyrirmæla mun vera á næsta leiti, tel ég ekki tilefni til að halda athugun málsins áfram. Læt ég athugun minni því lokið en þess er óskað að ríkissaksóknari upplýsi umboðsmann Alþingis þegar endurskoðuð fyrirmæli verða gefin út, svo og ef til þess kemur að tafir verði þar á.