Í tilefni kvartana vegna langs meðferðartíma kvörtunarmála hjá landlækni hefur umboðsmaður óskað eftir upplýsingum og skýringum frá heilbrigðisráðuneytinu.
Í áliti umboðsmanns frá árinu 2024 var því beint til ráðuneytisins að grípa án tafar til raunhæfra og markvissra aðgerða í því skyni að fækka þeim málum sem biðu afgreiðslu hjá landlækni. Í framhaldinu gerði ráðuneytið grein fyrir stöðu mála, viðbótarfjárheimild og áætlun um aðgerðir.
Í ljósi núverandi stöðu hefur umboðsmaður ákveðið að hefja aftur frumkvæðisathugun. Óskar hún eftir að ráðuneytið geri grein fyrir því hvað gert hafi verið eftir að svör þess bárust í fyrra málinu og hvort og hvernig það hafi stuðlað að umbótum við meðferð kvartana hjá embætti landlæknis. Þá er þess óskað að ráðuneytið lýsi afstöðu sinni til þess í hvaða horfi málshraði við meðferð kvörtunarmála er hjá embætti landlæknis í dag. Jafnframt er óskað eftir að upplýst verði hvort staða þessara mála hjá embættinu hafi orðið ráðuneytinu tilefni til frekari aðgerða og, ef svo er, hverra.
Bréf umboðsmanns til heilbrigðisráðherra
Tengd frétt
Ráðuneyti grípi til markvissra aðgerða vegna afgreiðslutíma kvartana hjá landlækni