19. ágúst 2026

Ábending til Barna- og fjölskyldustofu vegna Stuðla

Athugun umboðsmanns á því hvort fyrir hafi legið vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði sem hýsir neyðarvistun Stuðla er lokið.

Í ljósi þess að byggingarfulltrúi veitti leyfi til notkunar húsnæðisins til bráðabirgða að uppfylltum tilteknum skilyrðum, sem þegar höfðu verið uppfyllt, taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að halda athugun sinni áfram. Engu að síður varð hún tilefni til að senda Barna- og fjölskyldustofu ábendingu um ábyrgð stofnunarinnar á starfsemi Stuðla og annarra heimila og stofnana sem starfrækt eru á grundvelli barnaverndarlaga, enda fari hún með faglega og fjárhagslega yfirstjórn þeirra. Í því geti til að mynda falist að gengið sé úr skugga um að ytri aðbúnaður uppfylli kröfur til öryggis eða eftir atvikum að stöðva rekstur starfsemi í húsnæði sem ekki er talið öruggt til slíkrar starfsemi. Við mat á viðeigandi viðbrögðum við slíkar aðstæður verði að hafa í huga að um sé að ræða vistun barna í viðkvæmri stöðu sem þar að auki eru svipt frelsi sínu í lokuðu úrræði á ábyrgð ríkisins.

Jafnframt áréttaði umboðsmaður við mennta- og barnamálaráðherra að sjónarmiðin sem kæmu fram í ábendingu hennar til Barna- og fjölskyldustofu ættu að breyttu breytanda við um viðbrögð ráðuneytisins þegar því berast upplýsingar um að aðstæðum sé háttað með sambærilegum hætti og raunin var í þessu máli.

  

  

Mál nr. F5/2026

  

  

Tengd frétt

Óskað eftir upplýsingum um öryggisúttekt á húsnæði Stuðla