Barnavernd. Neyðarvistun. Öryggisúttekt á mannvirki. Öryggis- og hollustuháttakröfur. Yfirstjórn Barna- og fjölskyldustofu. Ábending.

(Mál nr. F5/2026)

Umboðsmaður tók til athugunar að eigin frumkvæði hvort legið hefði fyrir vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði Stuðla að Fossaleyni í Reykjavík. Aðdragandi fyrirspurnarinnar var að umboðsmanni barst ábending um að mögulega hafi svo ekki verið, að minnsta kosti ekki eftir að starfsemi neyðarvistunar hófst þar aftur eftir bruna sem þar varð haustið 2024.

Í ljósi þess að samkvæmt gögnum sem umboðsmanni bárust vegna athugunarinnar hafði byggingarfulltrúi þá veitt leyfi til notkunar húsnæðisins að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sem höfðu þegar verið uppfyllt, var ekki talin ástæða til áframhaldandi athugunar á málinu. Engu að síður gaf athugun þess umboðsmanni tilefni til að koma tilteknum ábendingum á framfæri við Barna- og fjölskyldustofu tengdum yfirstjórn hennar með heimilum og stofnunum á grundvelli barnaverndarlaga. Þá var sömu ábendingu komið á framfæri við mennta- og barnamálaráðuneytið, að breyttu breytanda.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 8. júlí 2026.

  

   

I Fyrirspurn umboðsmanns

Hér með tilkynnist að ég hef ákveðið að ljúka athugun minni á því hvort legið hafi fyrir vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði Stuðla að Fossaleyni í Reykjavík. Aðdragandi fyrirspurnarinnar var að umboðsmanni barst ábending um að mögulega hafi svo ekki verið, að minnsta kosti ekki eftir að starfsemi neyðarvistunar hófst þar aftur eftir bruna sem þar varð haustið 2024.

Af þessu tilefni var Barna- og fjölskyldustofu ritað bréf 15. maí sl. þar sem meðal annars var óskað eftir upplýsingum um framannefnt vottorð um öryggisúttekt. Lægi það ekki fyrir var jafnframt óskað eftir afstöðu Barna- og fjölskyldustofu til þess hvernig það yrði talið samrýmast skyldum hennar, sem fer með yfirstjórn heimila og stofnana sem ríkinu ber að sjá til að séu tiltæk samkvæmt XIII. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002, sbr. 79. gr. og e.- og f.-liði 2. mgr. 7. gr. laganna, að vista börn sem eru svipt frelsi sínu í húsnæði sem mögulega uppfyllti ekki öryggis- og hollustukröfur laga og reglugerða um mannvirki og kynni þannig að hafa verið óheimilt að hafa í notkun.   

  

II Svar Barna- og fjölskyldustofu

Svar Barna- og fjölskyldustofu barst umboðsmanni 29. maí sl. ásamt fylgigögnum. Í svarinu bendir stofnunin á að samkvæmt 3.8.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 beri byggingarstjóri fyrir hönd eiganda mannvirkis eða eigandi þess ábyrgð á að óska eftir öryggisúttekt áður en það er tekið í notkun. Húsnæði Stuðla að Fossaleyni sé í eigu Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE) og leigi Barna- og fjölskyldustofa það af Framkvæmdasýslunni. Skyldan til þess að óska eftir öryggisúttekt hafi þannig hvílt á Framkvæmdasýslunni eða byggingarstjóra fyrir hennar hönd.

Þá er upplýst að það hafi fyrst verið í desember 2025 sem Barna- og fjölskyldustofa hafi fengið upplýsingar um að mögulega væru ekki öll tilskilin leyfi og vottorð fyrir hendi varðandi húsnæðið. Hinn 3. desember 2025 hafi forstjóri Barna- og fjölskyldustofu óskað eftir upplýsingum frá Framkvæmdasýslunni um það og hafi fyrirspurnin verið ítrekuð reglulega án þess að efnisleg svör hafi í raun en fengist. Í febrúar 2026, eftir að stofnunin fékk skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til yfirlestrar, hafi orðið ljóst að ekki lægju allar úttektir fyrir varðandi húsnæði Stuðla eftir breytingar á því 2021. Í kjölfarið hafi nánar tiltekin samskipti átt sér stað við mennta- og barnamálaráðuneytið þar sem Barna- og fjölskyldustofa kom því meðal annars á framfæri að hún teldi ekki forsvaranlegt að vera sett í þá stöðu að bera ábyrgð á starfsemi Stuðla ef ekki lægju fyrir tilskilin leyfi og úttektir og óskaði eftir leiðbeiningum um framhaldið. Ráðuneytið hafi í kjölfarið átt í samskiptum við Framkvæmdasýsluna um málið.

Samkvæmt gögnum málsins sendi byggingarfulltrúi tölvupóst 5. maí sl. til meðal annarra Barna- og fjölskyldustofu og Framkvæmdasýslunnar þar sem tilkynnt var um óheimila notkun húsnæðisins að Fossaleyni þar sem það væri án öryggisúttektar. Þar hafi komið fram kröfur um bráðabirgðaráðstafanir til að notkun væri heimil fram að útgáfu vottorðsins. Hinn 11. maí sl. hafi byggingarfulltrúi síðan veitt leyfi til notkunar húsnæðisins að svo stöddu með þeim bráðabirgðaráðstöfunum sem komu fram í áhættumati brunahönnuðar hvað varðaði aukningu á mönnun. Frestur til að setja upp nýjar hurðir og fá öryggisúttekt yrði veittur þegar upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma hurðanna bærust og þá yrði formleg ákvörðun byggingarfulltrúa send út.

Varðandi þá spurningu hvernig það samrýmist skyldum stofnunarinnar að vista börn í húsnæði sem mögulega uppfyllir ekki öryggis- og hollustukröfur er í svari Barna- og fjölskyldustofu ítrekað að stofnunin sé leigutaki húsnæðisins og rekstraraðili Stuðla en Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir sé eigandi þess og hafi þannig borið ábyrgð á að afla umræddrar öryggisúttektar. Þegar Barna- og fjölskyldustofa hafi áttað sig á því í desemer 2025 að ekki lægju fyrir öll tilskilin leyfi og úttektir hafi forstjóri stofnunarinnar brugðist við með framanröktum samskiptum við Framkvæmdasýsluna og mennta- og barnamálaráðuenytið

   

III Ábending til Barna- og fjölskyldustofu

Í ljósi þess að byggingarfulltrúi veitti 11. maí sl. leyfi til notkunar húsnæðisins að svo stöddu að því skilyrði uppfylltu að gripið yrði til tiltekinna bráðabirgðaráðstafana sem þegar hafi verið gert tel ég ekki ástæðu til áframhaldandi athugunar minnar á málinu. Ég tel engu að síður að athugun málsins hafi gefið mér tilefni til að koma tiltekinni ábendingu á framfæri við Barna- og fjölskyldustofu tengdum yfirstjórn hennar með heimilum og stofnunum á grundvelli barnaverndarlaga.

Barna- og fjölskyldustofa fer með yfirstjórn heimila og stofnana sem ríkinu ber að sjá til að séu tiltæk samkvæmt XIII. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002, sbr. 2. mgr. 79. gr. og e.-lið 2. mgr. 7. gr. laganna. Neyðarvistun Stuðla telst til slíkrar stofnunar, sbr. a.-lið 1. mgr. 79. gr. laganna. Í 1. mgr. 3.8.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 segir að þegar mannvirki er tekið í notkun skuli gerð úttekt á öryggi þess og hollustuháttum í samræmi við ákvæði skoðunarhandbókar og skoðunarlista. Óheimilt sé að flytja inn í mannvirki eða taka það í notkun nema það uppfylli öryggis- og hollustukröfur laga um mannvirki og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og leyfisveitandi hafi gefið út vottorð um öryggisúttekt. Þá kemur fram í 3. mgr. sömu greinar að byggingarstjóri skuli fyrir hönd eiganda mannvirkis óska eftir öryggisúttekt áður en það er tekið í notkun. Einnig geti eigandi mannvirkis óskað eftir öryggisúttekt. Hafi byggingarstjóri vanrækt að óska eftir öryggisúttekt áður en mannvirki er tekið í notkun skuli leyfisveitandi boða til slíkrar úttektar þegar honum er kunnugt um að notkun sé hafin og skal hann tilkynna það Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Loks segir í 5. mgr. greinarinnar að fyrirhuguð starfsemi í viðkomandi mannvirki skuli tilgreind við öryggisúttekt og skuli öryggis- og hollustuháttakröfur uppfylltar í samræmi við fyrirhugaða starfsemi. Eigandi beri ábyrgð á og hafi það hlutverk að rökstyðja að allar slíkar kröfur séu uppfylltar, komi þær ekki óumdeilanlega fram á samþykktum uppdráttum.

Eins og kemur fram í svari Barna- og fjölskyldustofu er það samkvæmt tilvitnuðum ákvæðum byggingarreglugerðarinnar á ábyrgð eiganda mannvirkis eða byggingarstjóra fyrir hans hönd að tryggja að öryggis- og hollustuháttakröfum sé fullnægt og óska eftir öryggiúttekt. Hins vegar breytir það ekki því að Barna- og fjölskyldustofa fer eftir sem áður með faglega og fjárhagslega yfirstjórn heimilis eða stofnunar sem sett er á fót á grundvelli 1. mgr. 79. gr. barnaverndarlaganna, auk þess að hafa yfirumsjón með vistun barna þar. Af upplýsingum og gögnum málsins verður ekki annað séð en að frá því að breytingar voru gerðar á húsnæði neyðarvistunar Stuðla 2021 þar til í maí á þessu ári hafi verið óheimilt að hafa það í notkun þar sem það hafi ekki uppfyllt öryggis- og hollustuháttakröfur laga og reglugerða um mannvirki. Þegar grunur vaknaði í desember 2025 um að tilskilin leyfi og úttektir lægju ekki fyrir hafi Barna- og fjölskyldustofa haft samband við Framkvæmdasýsluna og síðar, í febrúar 2026, þegar það lá fyrir með vissu, haft samband við mennta- og barnamálaráðuneytið, upplýst um stöðuna og leitað eftir leiðbeiningum. Það var hins vegar ekki fyrr en í maí 2026 að gripið var til tiltekinna bráðabirgðaráðstafana að kröfu byggingarfulltrúa til að tryggja örugga notkun húsnæðisins til bráðabirgða. Það verður þannig ekki annað ráðið en að um nokkurra mánaða skeið hafi starfsemi verið haldið úti í húsnæðinu af hálfu Barna- og fjölskyldustofu þótt grunur, og síðar vitneskja, væri um að húsnæðið uppfyllti ekki öryggiskröfur.

Það er ekki í verkahring umboðsmanns Alþingis að benda á mögulegar aðgerðir þegar aðstæður líkt og þær sem hér um ræðir koma upp, hvorki almennt né í fyrirliggjandi máli. Hins vegar tel ég að athugun málsins gefi mér tilefni til að árétta að þótt ábyrgð á því að fyrir liggi öryggisúttekt vegna húsnæðis sem Barna- og fjölskyldustofa leigir undir úrræði á grundvelli 1. mgr. 79. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 hvíli á eiganda húsnæðisins ber stofnunin eftir sem áður ábyrgð á starfsemi úrræðisins. Í því getur til að mynda falist að gengið sé úr skugga um að ytri aðbúnaður uppfylli kröfur til öryggis eða eftir atvikum að stöðva rekstur starfsemi í húsnæði sem ekki er talið öruggt til slíkrar starfsemi. Við mat á viðeigandi viðbrögðum við slíkar aðstæður verður að hafa í huga að um er að ræða vistun barna í viðkvæmri stöðu sem þar að auki eru svipt frelsi sínu í lokuðu úrræði á ábyrgð ríkisins. Þeirri ábendingu er beint til Barna- og fjölskyldustofu að haga rækslu verkefna sinna eftirleiðis í samræmi við þessa ábyrgð á starfsemi úrræða á hennar vegum.

   

IV Niðurstaða

Með vísan til alls ofangreinds er athugun umboðsmanns á málinu lokið. Ég tek fram að afrit af bréfi þessu er sent mennta- og barnamálaráðherra til upplýsingar og áréttað að þau sjónarmið sem komið er á framfæri hér að framan eiga að breyttu breytanda við um viðbrögð þess þegar því berast upplýsingar um að aðstæðum sé háttað með sambærilegum hætti og raunin var í þessu máli.