Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála bar að taka kæru á bráðabirgðaákvörðun Fjarskiptastofu til efnislegrar meðferðar í stað þess að vísa henni frá.
Frávísun nefndarinnar byggði á því að bráðabirgðaákvörðun Fjarskiptastofu væri ekki kæranleg þar sem ekki væri um að ræða stjórnvaldsákvörðun. Umboðsmaður taldi aftur á móti að bráðabirgðaákvarðanir Fjarskiptastofu yrðu kærðar til úrskurðarnefndarinnar á grundvelli sérstakrar kæruheimildar í lögum um stofnunina og því hefði nefndinni borið að taka kæruna til efnislegrar meðferðar.
Þar sem fyrir lá að ákvörðun Fjarskiptastofu í málinu hafði leyst bráðabirgðaákvörðunina af hólmi var ekki ástæða til að mælast til þess að nefndin fjallaði aftur um kæruna. Þeim tilmælum var hins vegar beint til nefndarinnar að hafa sjónarmiðin í álitinu framvegis í huga.
Álit umboðsmanns í máli nr. 12595/2024