16. febrúar 2026

Aðfinnslur við skipulag á stjórnsýslu öryggisgæslu

Að áliti umboðsmanns er stjórnsýsla öryggisgæslu ekki skipulögð með fullnægjandi hætti af hálfu dómsmálaráðuneytisins þar sem ekki er tryggt að ráðherra berist upplýsingar um það þegar misbrestur verður á að rýmkun öryggisgæslu sé hagað til samræmis við niðurstöðu dómstóla. Þá voru viðbrögð ráðuneytisins ekki fullnægjandi þegar ljóst varð að úrskurði Landsréttar um rýmkun öryggisgæslu tiltekins manns hefði ekki verið framfylgt innan hæfilegs tíma.

Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns í tilefni kvörtunar manns yfir að sæta enn öryggisgæslu á réttargeðdeild þrátt fyrir úrskurð Landsréttar um rýmkun hennar. Að áliti umboðsmanns bar dómsmálaráðherra að bregðast við þegar ljóst varð að úrskurði Landsréttar um rýmkun öryggisgæslu mannsins hefði ekki verið framfylgt innan hæfilegs tíma. Er mælst til þess að ráðuneytið taki skipulag öryggisgæslu til skoðunar og komi því í það horf sem samrýmist sjónarmiðum í álitinu. Jafnframt er mælst til þess að ráðuneytið taki mál mannsins til athugunar og hagi meðferð þess í samræmi við sjónarmið í álitinu. Þá áréttar umboðsmaður nauðsyn þess að hugað verði að lagaumgjörð öryggisgæslu, sbr. fyrri ábendingar þess efnis í skýrslum um Klepp frá árinu 2018 og öryggisúrræði á Akureyri 2022. Ásamt tilmælum til dómsmálaráðuneytisins er athygli Alþingis því vakin aftur á þessu.

  

  

Álit umboðsmanns í máli nr. 12257/2023

  

Tengt efni

Tryggja þarf reglulega endurskoðun ótímabundinnar öryggisgæslu

Skýrsla umboðsmanns Alþingis um öryggisúrræði á Akureyri

Ófullnægjandi lagastoð til inngripa í stjórnarskrárvarin réttindi sjúklinga á geðdeildum

Skýrsla umboðsmanns Alþingis um Klepp