Umboðsmaður hefur lokið athugun sinni á því hvort orðalag í reglugerð kynni að leiða af sér óskýrleika vegna breyttrar hugtakanotkunar í löggjöf um útlendingamál.
Orðalagið sem vakti athygli umboðsmanns var „veitt hæli sem flóttamönnum“ en við setningu núgildandi laga um útlendinga kom hugtakið „alþjóðleg vernd“ í stað hugtaksins „hæli“. Félags- og húsnæðismálaráðherra var spurður hvort þetta gæti dregið úr skýrleika og leitt til þess að fólk áttaði sig ekki með fullnægjandi hætti á réttarstöðu sinni.
Í svari ráðuneytisins var þakkað fyrir ábendinguna og sagt að henni yrði haldið til haga við næstu endurskoðun reglugerðarinnar. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að halda athugun sinni áfram að svo stöddu en óskaði eftir að vera upplýst um það þegar reglugerðin yrði endurskoðuð og hvort breytingar yrðu gerðar.
Mál F8/2026
Tengt mál
476/2025