Umboðsmaður hefur komist að þeirri niðurstöðu að úrskurður dómsmálaráðuneytisins, þar sem ákvörðun Þjóðskrár Íslands um að synja umsókn um að fá að taka upp tiltekið ættarnafn var staðfest, hafi ekki verið í samræmi við lög.
Í áliti sínu segir umboðsmaður að þegar sótt sé um að taka upp rótgróið ættarnafn hér á landi sem umsækjandi eigi ekki þegar rétt til, þurfi að fara fram mat með hliðsjón af skilyrðum 16. gr. laga um mannanöfn. Slíkt mat hafi ekki farið fram.
Umboðsmaður benti á að þótt lögin heimiluðu ekki upptöku nýrra ættarnafna hér á landi ætti bannreglan ekki við þegar um væri að ræða umsókn um rótgróið ættarnafn sem amma umsækjandans hafði borið. Mæltist hún til að dómsmálaráðuneytið tæki málið fyrir aftur ef eftir því yrði leitað og leysti þá úr því í samræmi við sjónarmiðin í álitinu.
Álit umboðsmanns í máli nr. 12996/2024