Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg um framkvæmd álagningar aukastöðugjalda þegar bílum með sýnilegt stæðiskort fyrir hreyfihamlaða hefur verið lagt í gjaldskyld stæði.
Borist hafa ábendingar um að framkvæmdin hafi breyst eftir að eftirlitsbifreið var tekin í notkun hjá Reykjavíkurborg og álagning farið fram þótt stæðiskort hafi verið sýnilegt. Af því tilefni er borgin beðin að upplýsa hvernig framkvæmdinni er háttað að þessu leyti og lýsa afstöðu sinni til þess hvort við þessar aðstæður teljist fullnægjandi rannsókn hafa farið fram áður en ákvörðun um álagningu er tekin.
Bréf umboðsmanns til Reykjavíkurborgar