31. ágúst 2026

Skýrsla umboðsmanns fyrir árið 2025 er komin út

Í skýrslunni er varpað ljósi á það helsta sem bar til tíðinda í starfsemi umboðsmanns á síðasta ári í tengslum við eftirlit með aðstæðum frelsissviptra (OPCAT-eftirlit), frumkvæðismál, kvartanir og fleira.

Metfjöldi kvartana barst umboðsmanni á síðasta ári en nú þegar er ljóst að þær verð enn fleiri á þessu ári. Fyrri hluta árs 2026 höfðu borist 416 kvartanir samanborið við 282 á sama tíma í fyrra.

Í inngangi skýrslunnar vekur umboðsmaður athygli á því að nokkuð beri á að stjórnvöld svari henni ekki innan tilskilins frests og án þess að óskað sé eftir viðbótarfresti eða skýringar veittar á töfum á svörum. Þar af leiðandi þurfi stundum að ítreka erindi og jafnvel oftar en einu sinni. Þar sem flestar kvartanir til umboðsmanns lúta að töfum á svörum frá stjórnvöldum er ljóst að það er ekki einvörðungu embætti umboðsmanns sem glímir við þetta vandamál. Til að umboðsmaður geti rækt hlutverk sitt, upplýst mál með fullnægjandi hætti og afgreitt þau innan tilskilins tíma, verða stjórnvöld að bregðast við þegar óskað er eftir upplýsingum og skýringum frá þeim og svara innan tilskilins frests. Þá verða svörin að vera skýr og markviss.

Umboðsmaður bendir einnig á að í nokkrum tilvikum hefur reynst vandkvæðum bundið að ná í stjórnvöld í síma. Þessa hafi einnig gætt hvað snertir aðgang almennings að starfsfólki og þjónustu þessara sömu stjórnvalda sem getur takmarkað aðgengi borgaranna að stjórnvöldum. Við þessu hefur hún þurft að bregðast en fylgst verður með áfram og brugðist við þegar tilefni er til.

Tilkoma gervigreindar virðist hafa haft sín áhrif á fjölgun kvartana til umboðsmanns. Þrátt fyrir að slík hjálpartæki kunni að vera af hinu góða og geti verið gagnleg þá hefur þetta haft þær afleiðingar að kvartanir verða oftast lengri, flóknari og ómarkvissari en tilefni er til. Þá getur þetta líka tafið heildarmálsmeðferðina þar sem oft er litið fram hjá þeim leiðbeiningum sem stjórnvöld hafa þegar veitt um kæruleiðir og kærufresti. Til að umboðsmaður geti tekið kvörtun til umfjöllunar þurfa slíkar leiðir að hafa verið tæmdar.

Stjórnvöld brugðust almennt við álitum og í öllum tilfellum hefur verið farið að tilmælum umboðsmanns frá því í fyrra þó að í einu tilviki hafi það aðeins verið gert að hluta. Í því tilfelli var meðferð máls ekki hagað að öllu leyti í samræmi við þau sjónarmið sem rakin voru í álitinu þótt málið hefði verið endurupptekið eins og mælst var til.

  

  

Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2025