15. maí 2026

Lögreglustjóri beðinn um upplýsingar um málsmeðferð vegna afturköllunar skotvopnaleyfa

Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu um málsmeðferð embættisins við afturköllun skotvopnaleyfa. 

Sérstaka athygli umboðsmanns vakti að aðila virtist samtímis tilkynnt um afturköllun leyfis og boðið að koma á framfæri andmælum. Meðal annars er óskað eftir upplýsingum um hvort slík málsmeðferð tíðkist almennt hjá embættinu og við hvaða aðstæður. Þá er einnig óskað eftir rökstuddri afstöðu lögreglustjóra til þess hvort og, ef svo er, hvernig hann telji samrýmast stjórnsýslulögum að bjóða aðila máls fyrst að koma á framfæri andmælum, þegar honum hefur verið tilkynnt um töku ákvörðunarinnar.

   

    

Bréf umboðsmanns til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu