15. apríl 2026

Kröfur um líkamlega færni starfsnema hjá lögreglu ekki settar í samræmi við lög

Ráðherra bar að setja kröfur, um líkamlega færni til starfsnema hjá lögreglu, í reglugerð en mátti ekki framselja það vald sitt til mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns í tilefni af kvörtun yfir viðbrögðum setursins við beiðni um að byggt yrði á öðrum viðmiðum um líkamlega færni á grundvelli tiltekinnar heimildar í reglugerð.

Athugun umboðsmanns var afmörkuð við það hvort kröfur um líkamlega færni starfsnema hefðu verið settar í samræmi við lög. Hún benti á að samkvæmt lögreglulögum er ráðherra falið að setja í reglugerð kröfur um líkamlega færni. Ráðherra hafi hins vegar, með ákvæði í reglugerð, framselt það vald sitt til mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu í andstöðu við lögin.

Beindi umboðsmaður því til dómsmálaráðherra að mæla fyrir um kröfur um líkamlega færni nema í starfsnámi hjá lögreglu í reglugerð, í samræmi við lögreglulög.

   

  

Álit umboðsmanns í máli nr. 13010/2024