Í ljósi fyrirætlana heilbrigðisráðherra um fjármögnun bólusetninga drengja gegn HPV og sérstaks átaks landlæknis hefur umboðsmaður lokið frumkvæðisathugun á gjaldtöku vegna HPV bólusetninga barna á grunnskólaaldri.
Athugunin hófst í kjölfar kvörtunar sem laut að gjaldtöku vegna bólusetningar gegn HPV í grunnskóla. Þótt ekki væri unnt að taka kvörtunina til meðferðar vakti þágildandi reglugerð athygli umboðsmanns. Í samskiptum við heilbrigðisráðuneytið kom fram að í einhverjum tilvikum hefði komið upp ákveðið ósamræmi eða frávik þar sem gjald hefði verið innheimt fyrir bólusetningar barna gegn HPV í andstöðu við ákvæði reglugerðarinnar. Síðastliðið vor var svo greint frá því að ákveðið hefði verið að fjármagna HPV bólusetningar fyrir drengi að 18 ára aldri. Þá varð enn fremur ráðið að yfir stæði átak til að ná til sem flestra í árgöngum 2007-2010 og að fyrirkomulagið væri því orðið hið sama og gildir fyrir stúlkur.
Í ljósi fyrirætlana ráðherra og skýringa ráðuneytisins telur umboðsmaður rétt að ljúka athugun sinni að svo stöddu. Áfram verði þó fylgst með og brugðist við ef tilefni verður til.
Bréf umboðsmanns til heilbrigðisráðherra
Tengdar fréttir
Heilbrigðisráðuneytið beðið um ítarlegri upplýsingar um HPV bólusetningu barna
Óskað eftir upplýsingum um gjaldtöku vegna HPV bólusetningar barna