Óskað hefur verið eftir upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands um fyrirkomulag upplýsingagjafar um málefni sem snerta forsetann, svo sem hvaða reglur gilda um meðferð beiðna um upplýsingar um dagskrá forseta.
Í frétt í liðinni viku kom fram að skrifstofa forseta Íslands hefði hafnað beiðni um að afhenda dagskrá forsetans. Var á því byggt að ekki væri hægt að greina frá fyrirhuguðum ferðum því það væri oft gestgjafans að tilkynna um slíkt auk þess sem fleiri sjónarmið gætu komið þar við sögu, svo sem öryggissjónarmið. Jafnframt því að óska eftir upplýsingum um fyrirkomulag og reglur um upplýsingagjöf, þ.m.t. um dagskrá, óskar umboðsmaður eftir að upplýst verði hvaða sjónarmið lágu til grundvallar synjun um veitingu upplýsinga um dagskrá forseta. Sérstaklega þar sem ekki var beðið um þessar upplýsingar fyrir fram heldur eftir á. Óskað er svara fyrir 19. febrúar.
Bréf umboðsmanns til skrifstofu forseta Íslands