01. október 2024

Settur umboðsmaður í október

Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómari hefur verið settur umboðsmaður Alþingis á meðan nýkjörinn umboðsmaður lýkur störfum sínum og verkefnum á öðrum vettvangi.

Forseti Alþingis setti Helga í embætti umboðsmanns frá og með 1. október til 1. nóvember nk., eða skemur, geti kjörinn umboðsmaður tekið til starfa fyrr.

 

 

Tengd frétt

Kristín Benediktsdóttir kjörin umboðsmaður Alþingis