Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá dómsmálaráðherra um hvort ráðuneyti hans hyggist eða hafi þegar gripið til einhverra aðgerða til að bregðast við þeim vanda er lýtur að meðferð fjölskyldumála hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Tilefni fyrirspurnarinnar er kvörtun sem umboðsmanni barst vegna máls sem verið hefur til meðferðar hjá sýslumanninum í meira en tvö og hálft ár. Að mati sýslumannsembættisins sjálfs er óviðunandi bið eftir því að ágreiningsmál fái umfjöllun þar. Í bréfi umboðsmanns til ráðherra er m.a. bent á að þessi málaflokkur varði mannréttindi og verulega persónulega hagsmuni barna og foreldra. Miklar tafir á afgreiðslu mála sem t.d. varði umgengni geti eftir atvikum falið í sér brot á réttinum til fjölskyldulífs.
Hyggist ráðuneytið ekki grípa til einhverra aðgerða vegna stöðu mála óskar umboðsmaður eftir að það skýri ástæður þess og lýsi afstöðu sinni til þess hvort það samrýmist yfirstjórnar- og eftirlitshlutverki ráðherra gagnvart sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Í ljósi umfjöllunar í fjölmiðlum um tafir á þinglýsingum og skráningu skjala hjá sama embætti er þess einnig óskað að upplýst verði hvort ráðuneytið hafi brugðist við því.
Beiðni umboðsmanns um framangreindar upplýsingar er sett fram til að geta metið hvort tilefni sé til að taka þessa þætti í stjórnsýslu ráðuneytisins til athugunar á grundvelli frumkvæðisheimildar umboðsmanns. Óskað er svara eigi síðar en 7. febrúar nk.
Bréf umboðsmanns til dómsmálaráðherra má nálgast hér.