Umboðsmaður Alþingis áformaði að birta niðurstöðu frumkvæðisathugunar sem staðið hefur yfir á samskiptum innanríkisráðherra og fyrrverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku.
Um efni athugunarinnar vísast til fyrri umfjöllunar hér á heimasíðunni.
Umboðsmanni barst í þessari viku ábending um tiltekið atriði í tengslum við athugunina sem nú er unnið að því að kanna. Tekið skal fram að þar er ekki um að ræða samskipti fyrrverandi aðstoðarmanns ráðherra og fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum sem hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum.
Af þessum sökum er ekki unnt að birta niðurstöðu athugunarinnar í þessari viku en þess er vænst að athugun á ábendingunni ljúki á næstu dögum. Umboðsmaður vonast til að unnt verði að birta niðurstöðuna í næstu viku.