Lögreglu- og sakamál. Svör við erindum. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 243/2026)

A kvartaði annars vegar yfir því að erindum hennar til ríkissaksóknara hefði ekki verið svarað og hins vegar yfir málsmeðferð lögreglustjóra.

Í svari ríkissaksóknara til umboðsmanns kom fram að litið hefði verið svo á að erindum A hefði verið beint til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en í tilefni kvörtunar A til umboðsmanns hefði ríkissaksóknari þó svarða erindunum. Að því gættu taldi umboðsmaður ekki tilefni til frekari athugunar á þeim þætti kvörtunarinnar.

Þar sem A upplýsti að hún hefði beint kvörtun til nefndar um eftirlit með lögreglu og meðferð hennar var ólokið voru ekki talin fyrir hendi skilyrði til að fjallað yrði kvörtunina að öðru leyti enda málið enn til meðferðar í stjórnsýslunni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 6. október 2026.