Lyfjamál. Sjúkratryggingar. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 573/2026)

A kvartaði yfir málsmeðferð Sjúkratrygginga vegna umsóknar um lyfjaskírteini, meðal annars misvísandi leiðbeiningum í tengslum við stjórnsýslukæru og endurupptöku.

Þar sem málið var ekki til lykta leitt innan stjórnsýslunnar og A hafði nýlega fengið svör frá Sjúkratryggingum um málið taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að taka málið til nánari athugunar að svo stöddu.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. september 2026.