Kvartað var til umboðsmanns Alþingis og þess óskað að umboðsmaður tæki stöðu ferjusamgangna milli Vestmannaeyja og „fasta landsins“ til skoðunar og þá einkum með tilliti til þess að ferjusamgöngur væru eina raunhæfa vegasamband íbúa Vestmannaeyja við grunnvegakerfi landsins en nytu þó ekki sömu lagalegu stöðu og þjóðvegir.
Af kvörtuninni varð ekki ráðið að hún lyti að einstaklingsbundnum hagsmunum eða réttindum viðkomandi heldur var þar fremur um að ræða almennar athugasemdir við núverandi lagaumhvefi og framkvæmd ferjusiglinga. Voru því ekki lagaskilyrði til þess að erindið yrði tekið til frekari meðferðar á grundvelli kvörtunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. september 2026.