Félagsþjónusta sveitarfélaga. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 544/2026)

A kvartaði yfir skorti á aðstoð og leiðbeiningum til B af hálfu Landspítala og Reykjavíkurborgar vegna umsóknar um fjárhagsaðstoð.

Af gögnum sem fylgdu kvörtuninni varð ráðið að veittar hefðu verið leiðbeiningar um málið en að B hefði yfirgefið landið áður en hún fullnægði skilyrðum til að geta fengið fjárhagsaðstoð í viðkomandi sveitarfélögum og að ekki hafi verið send inn umsókn um slíka aðstoð. Því taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að taka kvörtunina til frekari meðferðar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. september 2026.