Almannatryggingar. Ellilífeyrir.

(Mál nr. 555/2025)

A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar um útreikning á hækkun ellilífeyrisgreiðslna hans vegna frestunar á töku ellilífeyris.

Umboðsmaður taldi ekki ástæðu til að gera athugasemdir við þá niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar að breytt röðun ákvæða í III. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, sem leiddu af lögum nr. 18/2023, fælu ekki í sér þá efnislegu breytingu að reikna skyldi áhrif hækkunar vegna frestunar á töku ellilífeyris áður en greiðslur væru skertar vegna annarra tekna lífeyrisþega.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.