Gjafsókn. Synjun á gjafsóknarbeiðni. Lagaskilyrði fyrir gjafsókn. Félagsþjónusta sveitarfélaga. Húsnæðismál. Félagslegar íbúðir. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 299/2025)

A kvartaði yfir synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni um gjafsókn.

Í ljósi skýringa ráðuneytisins taldi umboðsmaður ekki ástæðu til þess að gera athugasemdir við þá afstöðu gjafsóknarnefndar sem birtist í umsögn hennar til ráðuneytisins að mæla ekki með gjafsókn á þeim grundvelli að ekki sé eðlilegt að kostnaður við málareksturinn væri kostaður af almannafé eða að ekki lægju fyrir sérstakar ástæður sem gætu heimilað gjafsókn á þeim grundvelli að úrslit máls hafi verulega almenna þýðingu eða varði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagsmuni A. Taldi umboðsmaður því að fullnægjandi grundvöllur hefði verið lagður að ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um synjun gjafsóknar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.