A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja beiðni A um endurupptöku á ákvörðun stofnunarinnar um upphafstíma greiðslna félagslegs viðbótarstuðnings fyrir aldraða. Byggði A á því að þar sem Tryggingastofnun hefði ekki veitt henni leiðbeiningar um um rétt hennar til félagslegs viðbótarstuðnings í samræmi við þá sérstöku leiðbeiningarskyldu sem hvíldi á stofnuninni, hafi stofnuninni borið að ákveða greiðslurnar frá og með því að hún hóf töku ellilífeyris.
Í ljósi upplýsinga um að A ætti lífeyrisréttindi í öðru landi sem hún hefði ekki sótt um og tekið út var ekki unnt að fullyrða að svo stöddu að A hefði, vegna ætlaðs misbresta á upplýsingagjöf Tryggingastofnunar, farið á mis við réttindi sem hún gat átt tilkall til. Þá tók umboðsmaður fram að Tryggingastofnun hefði nú tekið upp það verklag að senda örorkulífeyrisþegum sem ættu takmörkuð lífeyrisréttindi hér á landi vegna búsetu sinnar erlendis bréf með upplýsingum um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða þegar þeir næðu ellilífeyrisaldri. Að þessu virtu væri ekki nægilegt tilefni til að fjalla frekar um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.