A og B kvörtuðu yfir meðferð ríkissaksóknara og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á máli sem varðaði eignaspjöll sem þau töldu sig hafa orðið fyrir. Rannsókn málsins var hætt af hálfu lögreglustjóra og ríkissaksóknari staðfesti þá ákvörðun.
Umboðsmaður taldi að af hálfu lögreglustjóra hefði ekki verið gætt þeirrar leiðbeiningarskyldu, sem hvíli á lögreglu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þegar látið var undir höfuð leggjast að leiðrétta grundvallarmisskilning, sem gætti af hálfu A og B í skýrslutöku af þeim. Þá taldi umboðsmaður leiðbeiningarbréf, sem A og B fengu afhent, hafa getað verið villandi og þar með ekki samrýmst leiðbeiningarskyldu lögreglu.
Þá taldi umboðsmaður að lögreglustjóri hefði ekki upplýst málið með fullnægjandi hætti áður en tekin var ákvörðun um að hætta rannsókn þess í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, enda áttu A og B þess ekki kost að lýsa afstöðu sinni fyrir lok þess tímamarks sem lögreglustjóri hafði sjálfur tilgreint í fyrrnefndu leiðbeiningarbréfi.
Í kjölfar ákvörðunar lögreglustjóra um að hætta rannsókn málsins sendu A og B lögreglustjóra erindi þar sem meðal annars var óskað rökstuðnings fyrir ákvörðuninni en ríkissaksóknara barst afrit erindisins og setti það í farveg stjórnsýslukæru. Þar sem hinn umbeðni rökstuðningur var ekki veittur taldi umboðsmaður að meðferð málsins hefði ekki verið í samræmi við 8. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008. Taldi umboðsmaður að ríkissaksóknara hefði borið að haga meðferð sinni á málinu í samræmi við að áðurnefndir annmarkar hefðu verið á málsmeðferð lögreglustjóra. Jafnframt taldi umboðsmaður að þar sem ríkissaksóknari aflaði hvorki upplýsinga um í hvaða farveg A og B leituðust við að leggja málið með erindi sínu né leiðbeindi þeim við sama tilefni hefði meðferð málsins af hálfu ríkissaksóknara ekki samrýmst 10. gr. og 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga.
Ríkissaksóknari lýsti þeirri afstöðu að A og B hefðu ekki gert áskilnað um málshöfðun en aðeins óskað þess „að málið [yrði] rannsakað sem sakamál“ og tekið af allan vafa um að þau hefðu lagt fram kæru í þeim tilgangi að fá tjón sitt bætt. Umboðsmaður vísaði til þess að í erindi A og B hefði verið farið fram á að málið yrði rannsakað sem sakamál og að þau teldu sakborning hafa brotið freklega gegn sér, valdið ótta og áhyggjum og bakað fjárhagslegt tjón. Að teknu tilliti til þessa taldi umboðsmaður hafa verið skýrar vísbendingar um breytta afstöðu A og B. Jafnframt taldi umboðsmaður að legið hefðu fyrir vísbendingar um hvernig fyrir fórst af hálfu lögreglu að leiðbeina A og B með fullnægjandi hætti. Að þessu gættu og sömuleiðis með vísan til þess að lögreglustjóri upplýsti málið ekki nægilega samkvæmt framangreindu hefði verið sérlega brýnt að ríkissaksóknari rannsakaði málið frekar áður en hann staðfesti ákvörðun lögreglustjóra. Þá hefði ríkissaksóknara borið að leiðbeina A og B um í hvaða horfi krafa um málshöfðun þyrfti að vera þannig að hún uppfyllti skilyrði laga.
Taldi umboðsmaður jafnframt tilefni til að taka fram að þar sem brotaþolum er settur frestur til að bera fram kröfu um málshöfðun sé nauðsynlegt að meðferð mála sé hagað í samræmi við það. Forgangsraða þurfi verkefnum og hraða vinnslu þeirra þannig að komið sé í veg fyrir réttarspjöll, til dæmis ef frestur til að setja fram kröfu um málshöfðun rennur sitt skeið án lögbundinnar málsmeðferðar svo sem raunin varð í máli A og B. Hefði ríkissaksóknara því verið rétt að huga betur að málshraða við meðferð málsins.
Umboðsmaður lauk málinu með áliti 17. júlí 2026.