A leitaði til umboðsmanns yfir kvörtun sem laut að aðild að veiðifélagi og aðkomu Fiskistofu að ákvörðun þar um.
Umboðsmaður tók fram að það félli utan starfssviðs hennar að fjalla um kvörtunina að því leyti sem hún laut að starfsemi félagsins. Þar sem fram kom að A hyggðist leita til Fiskistofu og óska eftir frekari upplýsingum lét umboðsmaður athugun sinni lokið.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. september 2026.