Utan valdsviðs. Einkaréttarlegt. Dómstólar og réttarfar.

(Mál nr. 503/2026)

A kvartaði yfir starfsháttum lögmanns vegna atriða sem tengdust opinberum fjárskiptum en af kvörtuninni varð ráðið að lögmaðurinn hafi verið skiptastjóri.

Þar sem kvörtunin varðaði ýmist störf lögmannsins sem heyra undir dómstóla eða sem einkaréttarlegs aðila féll utan hlutverks umboðsmanns að fjalla um kvörtunina. Umboðsmaður benti á að úrskurðarnefnd lögmanna leysti meðal annars úr kvörtun­um sem beinast að starfs­háttum lögmanna.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. september 2026.