Ríkisborgararéttur. Ekki aðild. Svör við erindum. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 488/2026)

A kvartaði undan því að dómsmálaráðuneytið hefði látið hjá líða að tryggja framkvæmd íslenskuprófa fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt. Þá laut kvörtunin jafnframt að því að erindi hans til ráðuneytisins hefði ekki verið svarað.  

Þar sem ekki varð séð að fyrri hluti kvörtunarinnar varðaði A umfram aðra taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að fjallað yrði um hana að því leyti. Þá taldi umboðsmaður ekki nægt tilefni að svo stöddu til að fjalla um tafir við að bregðast við erindi A.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 8. september 2026.