A kvartaði yfir álagningu aukastöðugjalds, en hann var handhafi íbúakorts.
Óumdeilt var að bílnum hefði verið lagt fyrir utan gildissvæði íbúakortsins og að ekki hefði verið greitt fyrir bílastæðið. Taldi umboðsmaður þegar af þeirri ástæðu ekki tilefni til að gera athugasemd við álagninguna.
Í kvörtun sinni kom A einnig á framfæri athugasemdum við framkvæmd og stefnu Reykjavíkurborgar í bílastæðamálum í tengslum við íbúakort. Að því tilefni leit umboðsmaður svo á að með kvörtuninni væri komið á framfæri ábendingu sem vert kynni að vera að taka til athugunar á grundvelli frumkvæðisheimildar umboðsmanns.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.