A kvartaði undan töfum á meðferð úrskurðarnefndar áritanamála á stjórnsýslukæru hans.
Í ljósi þess að úrskurðarnefndinni var nýlega komið á fót og hún hafði aðeins haft mál A til meðferðar um nokkurra mánaða skeið taldi umboðsmaður ekki nægilegt tilefni til að taka kvörtun A til frekari athugunar. Leit umboðsmaður jafnframt til þess að af hálfu nefndarinnar hafði tiltölulega nýlega verið boðað að úrskurður væri á næsta leiti.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.