Frumkvæðisathugun. Andmælaréttur. Rannsóknarreglan. Lögreglu- og sakamál. Skotvopnaleyfi. Afturköllun.

(Mál nr. F4/2026)

Umboðsmaður tók til athugunar málsmeðferð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu við afturköllun skotvopnaleyfa. Vakið hafði athygli umboðsmanns að samhliða tilkynningum lögreglustjóra um afturköllun virtist viðkomandi boðið að koma á framfæri andmælum af sama tilefni. 

Í svari lögreglustjóra við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að umrædd málsmeðferð væri aðeins viðhöfð við afturköllun skotvopnaleyfa. Þá kom fram að lögreglustjóri liti svo á að málsmeðferðin uppfyllti ákvæði stjórnsýslulaga. 

Í tilefni svara lögreglustjóra og að gættri yfirstjórn dómsmálaráðherra á málefnasviðinu, svo og því að ákvarðanir lögreglustjóra um afturköllun eru kæranlegar til ráðherra, var ráðherra ritað bréf. Í svari dómsmálaráðuneytisins var þeirri afstöðu lýst að betur samræmdist málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga að þegar afturköllun er til athugunar sé hlutaðeigandi tilkynnt um slíkt og gefinn kostur á að koma á framfæri andmælum áður en ákvörðun er tekin. Hefði verið ákveðið að leiðbeina lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og öðrum lögregluembættum til samræmis við þessa afstöðu.

Með vísan til afstöðu ráðuneytisins og leiðbeininga þess til lögreglustjóra taldi umboðsmaður ekki tilefni til að halda athugun málsins áfram.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.