Sveitarfélög . Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 304/2026)

A kvartaði yfir stjórnsýslu sveitarfélagsins X í tengslum við meintan trúnaðarbrest vegna erindis hans til sveitarstjórnar.

Umboðsmaður taldi, með vísan til eftirlitshlutverks innviðaráðherra, rétt að athugasemdir A yrðu fyrst bornar upp við ráðuneyti hans áður en kvörtun yrði lögð fram hjá umboðsmanni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2026.