Sveitarfélög. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 304/2026)

A kvartaði yfir stjórnsýslu sveitarfélagsins X í tengslum við meintan trúnaðarbrest vegna erindis hans til sveitarstjórnar.

Umboðsmaður taldi, með vísan til eftirlitshlutverks innviðaráðherra, rétt að athugasemdir A yrðu fyrst bornar upp við ráðuneyti hans áður en kvörtun yrði lögð fram hjá umboðsmanni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2026.

   

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 7. maí sl. sem beinist að sveitarfélaginu X og lýtur að meðferð sveitarfélagsins á kvörtun þinni vegna meintra trúnaðarbresta innan sveitarstjórnar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Kvörtunin lýtur einnig að því að ekkert sjálfstætt úrræði sé til staðar innan stjórnsýslu sveitarfélagsins þegar kvartanir beinast að kjörnum fulltrúum eða aðilum tengdum sveitarstjórn.

Með vísan til framangreinds skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en það hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Þetta ákvæði er einkum byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra, sem umboðsmaður Alþingis er, með kvörtun.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 1. mgr. 109. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 fer innviðaráðherra með eftirlit með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum samkvæmt sveitarstjórnarlögum og öðrum löglegum fyrirmælum. Eftirlit ráðherra getur meðal annars farið fram að frumkvæði hans, sbr. 112. gr. laga nr. 138/2011.

Af kvörtuninni verður ekki ráðið að athugasemdir þínar um stjórnsýslu sveitarfélagsins hafi verið bornar undir innviðaráðuneytið. Í ljósi þess eftirlitshlutverks, sem innviðaráðherra er falið með starfsemi sveitarfélaga, og framanlýstra sjónarmiða að baki 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 tel ég rétt að þú freistir þess að bera athugasemdir þínar við stjórnsýslu X undir ráðuneyti hans áður en leitað er til umboðsmanns með kvörtun af sama tilefni. Ef þú telur þig órétti beittan að fenginni afstöðu ráðuneytisins, getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.

Með vísan til þess, sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun þinni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.