Umboðsmaður tók málshraða úrskurðarnefndar um upplýsingamál til athugunar að eigin frumkvæði í kjölfar ábendinga og kvartana um tafir við afgreiðslu mála hjá nefndinni.
Í skýringum forsætisráðuneytisins til umboðsmanns kom meðal annars fram að til betri vegar horfði varðandi málsmeðferðartíma og að fyrir dyrum stæðu frekari aðgerðir, sem að mati ráðuneytisins væru til þess fallnar að styrkja við starf nefndarinnar. Einkum með vísan til framanlýstra skýringa ráðuneytisins ákvað umboðsmaður að láta athugun málsins lokið að sinni.
Umboðsmaður tók þó fram að áfram yrði fylgst með málsmeðferðartíma hjá úrskurðarnefndinni og yrði hann tekinn til athugunar að nýju ef tilefni þætti til.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi til forsætisráðuneytisins 30. janúar 2026.