Skipulags- og byggingarmál. Sveitarfélög. Kæruheimild. Kærufrestur. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 404/2025)

Kvartað var yfir úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, en með honum var kæru A til nefndarinnar, vegna ákvörðunar Garðabæjar um að samþykkja deiliskipulag Arnarlands vísað frá sökum þess að hún barst að kærufresti liðnum. Þá laut kvörtunin að synjun nefndarinnar um endurupptöku málsins. Í kvörtun A var vikið að því að A hefði áður kært sama mál en þeirri kæru hafði verið vísað frá nefndinni.

Þar sem fyrri kæra A til nefndarinnar barst áður en deiliskipulag hafði verið birt taldi umboðsmaður ljóst að úrskurðarnefndinni hafi ekki verið fært að kveða upp efnisúrskurð. Þá taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að gera athugasemdir við frávísun síðari kærunnar en ljóst var að hún barst að kærufresti liðnum. Loks taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að gera athugasemdir við synjun nefndarinnar á beiðni um endurupptöku málsins.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. desember 2025.