Ákvörðun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um að meðferð barnaverndarþjónustu á tilkynningu teldist réttlætanleg og hefði augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi byggðist ekki á fullnægjandi grundvelli að mati umboðsmanns.
Kvartað var til umboðsmanns yfir ákvörðun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um að erindi uppfyllti ekki skilyrði til að vera tekið til meðferðar en þar var kvartað yfir meðferð barnaverndarþjónustu á tilkynningu föður um andlegt ofbeldi móður gegn barni þeirra. Niðurstaða barnaverndarþjónustunnar var byggð á því að forsjármál væri á sama tíma rekið fyrir dómstólum.
Umboðsmaður gat ekki fallist á að það sjónarmið, eitt og sér án frekara samhengis, gæti talist málefnalegt við slíkt mat. Stofnunin hefði ekki haft nægar forsendur til að slá því föstu að meðferð á tilkynningunni hefði augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi án þess að afla frekari upplýsinga frá barnaverndarþjónustunni. Þar sem það hafði ekki verið gert var niðurstaða umboðsmanns að ákvörðun stofnunarinnar hefði því ekki verið reist á fullnægjandi grundvelli með tilliti til rannsóknar málsins.
Álit umboðsmanns í máli nr. 483/2025