13. október 2026

OPCAT-fundur í Osló

Starfsfólk norrænna umboðsmanna sem sinnir OPCAT-eftirliti með aðstæðum frelsissviptra hittist í Noregi fyrir skemmstu á árlegum fundi sínum.

Meðal annars var rætt um eftirlit á stöðum þar sem börn og ungmenni eru vistuð og sérstakar áskoranir því tengdar. Þá gáfu einstaklingar, sem sjálfir höfðu verið vistaðir á slíkum stofnunum, þátttakendum á fundinum góð ráð um viðtöl við börn á þessum stöðum. Einnig var haldin vinnustofa þar sem lögð voru raunhæf verkefni fyrir þátttakendur, auk þess sem hagnýt álitaefni voru rædd, svo sem skipulagning OPCAT-heimsókna, viðtalstækni og framsetning tilmæla í skýrslum.