Óskað hefur verið eftir upplýsingum um aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu á vegum sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Við síðustu kosningar kom í ljós að rampar sem settir höfðu verið upp á utankjörfundarstað uppfylltu ekki að öllu leyti ákvæði byggingarreglugerðar. Kvaðst sýslumaður þá ætla að ráðast í nauðsynlegar úrbætur fyrir næstu kosningar. Umboðsmaður hefur því óskað eftir upplýsingum um hvernig aðgengi hreyfihamlaðra að kjörstað sé háttað nú og hvernig það samræmist kröfum reglugerðarinnar.
Þar sem atkvæðagreiðslu utan kjörfundar lýkur innan skamms er óskað eftir svörum eigi síðar en 24. ágúst nk.
Bréf umboðsmanns til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu
Tengd frétt
Aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu kannað