08. maí 2026

Óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um umsýsluumboð

Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um umsýsluumboð og reglugerð þar að lútandi.

Tilefnið er ábending um að tiltekinn hópur fólks með fötlun eigi ekki kost á að nýta sér svonefndar heilbrigðisgáttir, til dæmis Heilsuveru, því umsýsluumboð séu ekki gefin út. Hátt í tvö ár eru liðin frá því að ákvæði um slíkt umboð voru sett í lög en reglugerð þar að lútandi hefur ekki verið gefin út. Umboðsmaður spyr því meðal annars hvort gefin hafi verið út umsýsluumboð eftir gildistöku áðurnefndra lagaákvæða og hvers vegna reglugerðin hefur ekki enn verið sett svo og hvenær þess sé að vænta.  

   

  

Bréf umboðsmanns til heilbrigðisráðherra