Kvartað var yfir því að dómsmálaráðuneytið hefði ekki afgreitt beiðni um upplýsingar sem lögð hefði verið fram í lok mars.
Þar sem hvorki voru liðnir 30 virkir dagar frá því að óskað var eftir upplýsingunum né leitað til úrskurðarnefndar um upplýsingamál voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um málið að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 8. maí 2023.
Vísað er til kvörtunar yðar 2. maí sl. yfir því að dómsmálaráðuneytið hafi ekki afgreitt erindi yðar frá 29. mars sl. þar sem þér óskið eftir upplýsingum í tengslum við skipun í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum með vísan til upplýsingalaga nr. 140/2012. Þér ítrekuðuð erindi yðar með tölvupóstum 13. og 19. apríl sl.
Í upplýsingalögum er gengið út frá því að skylt sé að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál sem og aðgang að tilteknum fyrirliggjandi gögnum, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. til 10. gr. laganna. Í 1. og 2. málslið 1. mgr. 17. gr. upplýsingalaga segir að tekin skuli ákvörðun um það hvort orðið verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skuli skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Þá segir í 3. mgr. 17. gr. að hafi beiðni um aðgang að gögnum ekki verið afgreidd innan 30 virkra daga frá móttöku hennar sé beiðanda heimilt að vísa málinu til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem úrskurðar um rétt hans til aðgangs.
Að svo stöddu hef ég ekki tekið afstöðu til þess hvernig leysa beri efnislega úr beiðni yðar á grundvelli upplýsingalaga enda er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds og það hefur ekki fellt úrskurð sinn í málinu, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Í samræmi við ákvæðið er það forsenda þess að ég geti fjallað um hvort afgreiðsla um aðgang að gögnum á grundvelli upplýsingalaga hafi verið í samræmi við lög að efnisleg niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál liggi fyrir.
Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að þér hafið nýtt yður framangreint úrræði enda ekki tímabært að teknu tilliti til þess að erindið var sent 29. mars sl. og 30 virkir dagar því ekki liðnir. Í ljósi þess að ekki hefur verið nýtt sú kæruleið sem yður er fær innan stjórnsýslunnar eru ekki skilyrði að lögum til að ég fjalli um mál yðar að svo stöddu. Ef þér kjósið að leita til nefndarinnar og teljið yður enn beittan rangsleitni að fenginni úrlausn hennar getið þér leitað til umboðsmanns á ný með erindi þar að lútandi innan árs, sbr. 2. og 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997.
Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.