Kvartað var yfir afgreiðslu X á erindi vegna hunda sem höfðu orðið ketti í eigu A og B að bana. Kvörtunin varðaði meðal annars afgreiðslu X á kröfu þeirra um að eiganda hundanna yrði bannað hundahald og hundarnir fjarlægðir án tafar, afstöðu til aðildar þeirra að málinu og synjun um aðgang að gögnum.
Þar sem A og B höfðu ekki leitað til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna afgreiðslu sveitarfélagsins á erindinu eða úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar um aðgang að gögnum var umboðsmanni ekki fært að taka kvörtunina til meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. nóvember 2026.