Kvartað var yfir heilbrigðisráðuneytinu og gerðar athugasemdir við ákvæði reglugerðar um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna myndgreininga sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
Í ljósi þess að fyrir dómstólum voru rekin mál þar sem ætla mátti að kynni að reyna á sambærileg álitaefni og kvörtunin laut að taldi umboðsmaður sér ekki fært að fjalla frekar um málið að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. nóvember 2026.