Starfssvið umboðsmanns Alþingis. Utan starfssviðs.

(Mál nr. 609/2026)

Kvörtun A beindist að X ehf. og Vinnumálastofnun og laut að því að hann hafði ekki fengið útgefið prófskírteini vegna íslenskunámskeiðs sem hann lauk þar sem námskeiðsgjald hafði ekki verið greitt. A kvaðst hafa verið upplýstur um að Vinnumálastofnun myndi greiða gjaldið.

Umboðsmaður vísaði til þess að námskeiðið væri rekið af einkahlutafélagi sem starfar á grundvelli einkaréttar og lyti því ekki eftirliti umboðsmanns. Þá varð ekki ráðið af kvörtuninni og gögnum málsins að afstaða Vinnumálastofnunar lægi fyrir og því taldi umboðsmaður rétt að leitað væri fyrst til stofnunarinnar, og eftir atvikum úrskurðarnefndar velferðarmála, áður en leitað væri til umboðsmanns með málið.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 6. nóvember 2026.