A kvartaði yfir starfsháttum starfsmanns Matvælastofnunar í tengslum við eftirlit á heimili hans.
Umboðsmaður taldi rétt að áður en borin væri fram kvörtun af slíku tilefni hefðu aðfinnslurnar verið bornar undir forstöðumann Matvælastofnunar og í framhaldinu undir atvinnuvegaráðuneytið, teldi A sig enn órétti beittan að fenginni afstöðu forstöðumannsins.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. nóvember 2026.