Mannvirki. Skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 603/2026)

A beindi erindi til umboðsmanns í tengslum við ákvörðun byggingarfulltrúans í Garðabæ um beita ekki þvingunarúrræðum vegna framkvæmda á sérafnotareitum við fjöleignarhús sem A taldi vera umfram það sem heimilt var samkvæmt deiliskipulagi.

Þar sem það er ekki hlutverk umboðsmanns að veita lögfræðilegar álitsgerðir eða svara almennum spurningum um tiltekin málefni eða réttarsvið, svo og að A hafði ekki leitað til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með málið, líkt og byggingarfulltrúinn hafði leiðbeint um, voru ekki skilyrði til að hún fjallaði um erindið.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. nóvember 2026.